Þótt mörg norrænu málanna séu náskyld íslensku, og hvert öðru lík, er enginn hægðarleikur að geta sér til um hvað hinar fjölbreytilegu tegundir af fiski, grænmeti, mjólkurmat eða kjötréttum heita á hverju máli – eða hvað erlendu heitin merkja á íslensku. Lausnina gefur Norræna matorðaskráin, því þar er í sjónhending hægt að fá orð úr einu máli þýtt á öll hin, og líka á ensku.
Hér er líka hægt að verða sér úti um spennandi norrænar mataruppskriftir. Ef þú skilur ekki eitthvert orð í þeim – þá er bara að leita!
Áttu uppskrift sem þú vilt að fleiri njóti? Láttu hana þá koma! Sjá „Norrænar mataruppskriftir“.